Plötusamningurinn truflr ekki fótboltann
Jón Ragnar Jónsson kom inn í byrjunarlið FH í fjarveru Guðjóns Árna Antoníussonar í 1-0 sigri liðsins gegn Breiðabliki í gær. Síðastliðið haust gerði Jón Ragnar plötusamning við Sony í Bandaríkjunum en sá samningur hefur lítil áhrif á fótboltanum hjá honum.
,,Þeir eru svo grillaðir þarna í stóru Ameríku að þetta tekur allt langan tíma. Ég hef ekki miklar áhyggjur. Ég er ekkert á Skype fundum allan daginn. Ég er yfirleitt laus á milli 5 og 7 til að sprikla í Krikanum," sagði Jón við Fótbolta.net í dag en hann er í fínu formi þessa dagana.
,,Ég er í fínu standi. Ég er búinn að æfa í allan vetur. Ég var reyndar frekar þreyttur þegar það var korter eftir í gær en það var aðallega ef því að ég var veikur alla síðustu viku."
Var veikur og náði í rúlluna:
Jón sat veikur heima þegar FH og ÍBV gerðu jafntefli á fimmtudag en þar fékk Guðjón Árni Antoníusson að líta rauða spjaldið sem varð til þess að hann var í leikbanni í gær.
,,Þegar Gaui fékk rautt þá náði ég strax í rúlluna mína og fór að rúlla til að koma mér í stand. Ég sá í hvað stefndi og ég er búinn að hugsa um þennan Blikaleik síðan á fimmtudag," sagði Jón sem reiknar ekki með að halda sæti sínu þegar Guðjón Árni snýr aftur úr leikbanni um næstu helgi.
,,Ég á ekkert von á því. Ég er alltaf klár þegar kalli kemur en er slakur þess á milli," sagði Jón sem nýtur þess í botn að spila með FH.
,,Það er jafn skemmtilegt að spila fótbolta í 90 mínútur og spila á sviði í 90 mínútur. Þú færð samt ekki sigurtilfinninguna í tónlistinni, þú færð ekki þrjú stig þar," sagði Jón hlæjandi.
Vill þrýsta honum niðri í fjær:
Jón Ragnar átti eina marktilraun í gær en Gunnleifur Gunnleifsson varði frá honum í horn.
,,Mér fannst þetta færi í gær ekki vera neitt neitt, Gulli var búinn að loka á mig. "Signature moveið" hjá mér er að þrýsta honum niðri í fjær. Það er rugl að ég hafi ekki gert það gegn Fram í fyrra og í gær ætlaði ég að komast í þessa stöðu en ég náði því ekki."
Nýju hanskarnir skiluðu sínu:
Jón átti langt innkast á Björn Daníel Sverrisson í sigurmarki FH í gær. Björn sendi boltann síðan á Emil Pálsson sem skoraði. Jón þakkar góðum hönskum fyrir kastið í gær.
,,Korteri áður en við áttum að mæta upp í Krika í gær fór ég í þá dásamlegu búð Músík og Sport í Hafnarfirði. Ég ætlaði að spila í hönskum en ég átti ekki hanska með gripi. Gellan seldi mér hanska með gripi á fingurgómunum og það kom sér aldeilis vel í þessu marki. Ég held að þetta hafi verið extra þrír metrar í gripinu," sagði Jón kátur að venju.




