Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 22. maí 2013 18:30
Magnús Már Einarsson
Petrov í þjálfaralið Aston Villa
Stilyan Petrov, fyrrum fyrirliði Aston Villa, er kominn í þjálfaralið félagsins.

Petrov mun vera aðstoðarmaður Gordon Cowans með unglingalið Aston Villa.

Hinn 33 ára gamli Petrov greindist með hvítblæði í fyrra og hann tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann hefði lagt skóna á hilluna.

Petrov lék 218 leiki með Aston Villa á ferli sínum sem og 92 leiki með búlgarska landsliðinu.
Slapp
banner