Paolo Di Canio hefur verið gríðarlega umtalaður frá því að hann var ráðinn sem knattspyrnustjóri Sunderland. Umræðan hefur verið bæði jákvæð og neikvæð en nú er komið myndband á netið þar sem Di Canio lýsir því hvernig átta stig í sjö leikjum með sig við stjórnvölinn sé kraftaverk. Hann notar orðið kraftaverk, eða ,,miracle", fimm sinnum á innan við þrjátíu sekúndum. Þetta er einstaklega fyndið vegna þess að átta stig í sjö leikjum er mjög lágt stigameðaltal og gæti leitt til falls.

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf.
All rights reserved.




