Birna Berg Haraldsdóttir, markvörður FH, sneri aftur í fótboltann eftir tveggja ára fjarveru í kvöld þegar hún spilaði í 4-1 sigri á Aftureldingu í Pepsi-deild kvenna. Birna fékk á sig skrautlegt mark. Smelltu hér til að horfa á atvikið.
,,Tilfinningin er bara mjög góð, ótrúlega gaman að koma aftur á fótboltavöllinn eftir tæpa tveggja ára fjarveru. Við vorum staðráðnar í að vinna okkar fyrsta sigur hér í dag, það var ótrúlega gaman að sjá baráttuna í stelpunum og þær voru alltaf mættar í pressu sama hvar maður leit á völlinn," sagði Birna Berg að leik loknum.
,,Þetta voru svona pínu þreyfingar í byrjun en við tókum fljótlega undirtökin og áttum miðjuna lungan af fyrri hálfleik og skorum 3 glæsileg mörk með ekkert svo löngu millibili. Í seinni hálfleik dettum við aðeins niður en höldum þó áfram að spila vel og uppskárum okkar fyrstu þrjú stig í Pepsi-deildinni þetta árið. Mér fannst allir leikmenn standa sig gríðarlega vel og þeir leikmenn sem komu inná skiluðu sínu."
Ótrúlegt mark átti sér stað í Krikanum í kvöld, en Birna missti þá boltann þegar hún ætlaði að kasta boltanum fram völlinn. Ekki fór betur en svo að boltinn endaði fyrir aftan Birnu, þar sem sóknarmaður Aftureldingar var, og skilaði boltanum í autt netið: ,,Þetta mark var mjög sérstakt. Ég hlæ af þessu núna en var bölvandi sjálfri mér í dágóðan tíma eftir þetta. Ég hef oft séð svona myndbönd á youtube sem heita "funny goals" eða "funny goalkeepers fail" og það er alveg örugglega hægt að finna alveg eins mark á youtube. En ég var semsagt að fara að kasta boltanum yfir endilangan völlinn og var þvílíkt að hlaða í gott kast og missi boltann úr hendinni, ég held bara að það hafi vantað harpixið eða það hafi verið hor í hanskanum. En guð sé lof að við töpuðum ekki 0-1 þá hefði ég haldið mig innandyra næstu vikur," sagði Birna sem hafði gaman að þessu.
Nýverið samdi Birna við sænska kvennameistaraliðið í handbolta, IK Savehof. Aðspurð hvort hún hafi fengið eitthvað sérstakt leyfi frá þeim svaraði Birna: ,,Ég reyndar spurði þá ekki um það. Samningurinn tekur í gildi 1.júní og eftir það má ég ekki stunda aðrar íþróttir eða gera neitt sem að gæti haft áhrif á getu mína á vellinum. Þannig ég hef rúma viku til að láta eins og vitleysingur."
Birna handabrotnaði í leik með kvennaliði Fram í handbolta í vetur, en segist öll vera koma til: ,,Já ég handarbrotnaði í leik á móti ÍBV í handboltanum 17.apríl, 16 dögum seinna gafst ég uppá gipsinu og klippti það af mér. Síðan þá hef ég verið að ná upp styrk og hreyfigetu og er mjög langt komin með það að vera 100% heil. Í dag eru komnar 5 vikur og ég finn ekki fyrir neinum sem eru frábærar fréttir," sagði Birna Berg að lokum.



