Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 23. maí 2013 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Malouda gæti þurft að mæta á æfingar út júní
Florent Malouda, 32 ára franskur kantmaður Chelsea, gæti verið fastur á æfingasvæði Chelsea þar til samningur hans rennur út 30. júní. Hann er starfsmaður Chelsea og félagið getur því beðið hann um að mæta á æfingar þó að allir aðrir liðsmenn séu í fríi, en svipað gerðist fyrir Winston Bogarde árið 2004 þar sem hann var byrjaður að fljúga daglega á milli frá heimili sínu á meginlandi Evrópu til Lundúna til að mæta á æfingar um mitt sumar.

Malouda er ekki búinn að spila fyrir Chelsea frá því að hann kom inná í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og var inná vellinum þegar liðið hampaði sögulegum titli.

Malouda lék þrjá leiki fyrir franska landsliðið á Evrópumótinu síðasta sumar og þegar hann sneri aftur í æfingabúðir Chelsea leið ekki á löngu þar til hann var rekinn úr aðalliðinu fyrir að neita að biðja Roberto Di Matteo, þáverandi knattspyrnustjóra liðsins, afsökunar.

Chelsea samþykkti þá beiðni hans um að vera seldur en þegar á hólminn var komið hætti Malouda við að ganga til liðs við félag í Mexíkó og ákvað að vera hjá Chelsea út samninginn.

Hann var þá sendur á æfingar með vara- og unglingaliði Chelsea, pláss hans í klefanum var gefið öðrum sem og einkabílastæði hans.

Malouda kom til Chelsea frá Lyon árið 2007 og kostaði þá rúmlega 13 milljónir punda. Hann hefur leikið 220 leiki fyrir Chelsea og skorað 45 mörk í þeim. 4 milljónir punda er upphæðin sem Malouda hefur þénað frá því að hann spilaði síðasta leik sinn fyrir Chelsea.
Slapp
banner
banner
banner