Heimild: kfia.is
Bakvörðurinn Guðjón Heiðar Sveinsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun því ekki leika meira með Skagaliðinu í Pepsi-deildinni á þessu tímabili. Frá þessu er greint á kfia.is.
„Já nú er maður endanlega hættur. Ég er búinn að vera í þessu síðan árið 2000 svo ferillinn hjá manni spannar einhver 13 ár. Það er kannski helst tímaskortur sem orsakar það að ég hef tekið þessa ákvörðun," segir Guðjón.
„Ég er auðvitað í fullri vinnu með boltanum, svo er ég í fjarnámi í byggingariðnfræði við HR auk þess sem maður er auðvitað með stóra fjölskyldu en við frúin eignuðumst okkar fjórða barn í febrúar mánuði síðastliðnum.“
„Við erum klárlega með mannskap til þess að bæta árangurinn frá því í fyrra og vonandi bara að það gangi eftir hjá strákunum í sumar,“ segir Guðjón en ÍA endaði í sjötta sæti í fyrra. Guðjón lék 219 leiki með ÍA á ferlinum og skoraði í þeim 14 mörk.




