Tomi Ameobi, fyrrum sóknarmaður Grindavíkur og BÍ/Bolungarvíkur, skoraði annað marka VPS í Finnlandi sem vann 2-1 útisigur gegn HJK Helsinki í dag.
Ameobi jafnaði í 1-1 á 52. mínútu en 20 mínútum síðar kom sigurmarkið.
Ameobi jafnaði í 1-1 á 52. mínútu en 20 mínútum síðar kom sigurmarkið.
Með þessum sigri komst VPS í toppsætið, er með jafnmörg stig og HJK en betri markatölu og á einnig leik inni.
Það eru þó aðeins 7 umferðum lokið í finnsku deildinni.




