Hoffenheim 3 - 1 Kaiserslautern
1-0 Roberto Firmino ('11)
2-0 Roberto Firmino ('29)
2-1 Mohamadou Idrissou ('58)
3-1 Sven Schipplock ('67)
1-0 Roberto Firmino ('11)
2-0 Roberto Firmino ('29)
2-1 Mohamadou Idrissou ('58)
3-1 Sven Schipplock ('67)
Hoffenheim stendur vel að vígi í umspili um sæti í þýsku úrvalsdeildinni fyrir næstu leiktíð þegar liðið lagði Kaiserslautern 3-1 í fyrri leik liðanna.
Hoffenheim endaði í þriðja neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á meðan Kaiserslautern hafnaði í þriðja sæti þýsku fyrstu-deildarinnar og því leika liðin um laust sæti í efstu deild.
Roberto Firmino fór á kostum í liði Hoffenheim en hann skoraði fyrstu tvö mörk liðsins og lagði það þriðja upp fyrir Sven Schipplock. Fyrir Kaiserslautern skoraði Mohamadou Idrissou.
Seinni leikurinn fer fram á mánudaginn á heimavelli Kaiserslautern og kemur þá í ljós hvor leikur í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.



