Hamar 1 - 1 HK
0-1 Birgir Magnússon ('86)
1-1 Kristján Valur Sigurjónsson ('93)
Rautt spjald: Davíð Magnússon, HK ('94)
0-1 Birgir Magnússon ('86)
1-1 Kristján Valur Sigurjónsson ('93)
Rautt spjald: Davíð Magnússon, HK ('94)
Það urðu óvænt úrslit í 2. deild karla í kvöld þegar Hamar fékk HK í heimsókn á Grýluvöll í Hveragerði en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 86. mínútu þegar Birgir Magnússon náði að brjóta ísinn fyrir HK og stefndi allt í sigur gestanna.
En á þriðju mínútu uppbótartímans jafnaði Kristján Valur Sigurjónsson fyrir Hamar og tryggði heimamönnum eitt stig.
HK er þar með í sjöunda sæti með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina en Hamar hefur gert jafntefli í öllum leikjunum hingað til og er með þrjú stig í áttunda sæti.




