,,Ég er svekktur, það er engin spurning," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari Selfyssinga eftir 3-2 tap liðsins gegn Haukum.
,,Að fá þrjú mörk á sig er alltof mikið en við fengum færin til að skora þrjú líka. Jafntefli hefði verið sanngjarnt en við náðum því ekki og það þýðir ekki að væla yfir því."
,,Að fá þrjú mörk á sig er alltof mikið en við fengum færin til að skora þrjú líka. Jafntefli hefði verið sanngjarnt en við náðum því ekki og það þýðir ekki að væla yfir því."
,,Við erum með hörkugótt fótboltalið en við kunnum líka að berjast og verjast. Það er ekki alltaf í boði að spila flottan fótbolta."
,,Í seinni hálfleik náðum við upp fínum köflum og sköpuðum fín færi sem nýttust því miður ekki í dag."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























