Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 24. maí 2013 08:30
Magnús Már Einarsson
Baldur Sigurðsson og áskorun í sjónvarpsþættinum
Daníel Laxdal söng lag um móður sína.  Það verður frumsýnt í þættinum.
Daníel Laxdal söng lag um móður sína. Það verður frumsýnt í þættinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þriðji þáttur af sjónvarpsþættinum Fótbolta.net er á dagskrá í dag en þátturinn er á dagskrá á SportTv klukkan 12:30 á föstudögum og sýndur bæði á netinu og í sjónvarpi.

Hver þáttur er um 40 mínútur að lengd en umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson.

Dagskrá í þætti þrjú :
- Hjörtur Júlíus Hjartarson kemur í heimsókn og ræðir um Pepsi-deildina
- Baldur Sigurðsson leikmaður KR kíkir við
- Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis kemur og ræðir um 1. deildina auk þess sem myndbrot verða sýnd úr leikjum þar
- Áskorun bræðranna Daníels og Jóhanns Laxdal verður frumsýnd en þeir sungu lag um móður sína

Þátturinn er í beinni vefútsendingu á SportTv.is og einnig sýndur í sjónvarpi á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 hjá Vodafone. Upptaka af honum verður svo sett inn á heimasíðu SportTv

Áhorfendur geta tekið þátt og komið með uppástungur að umræðuefni með því að hafa samband á @SoliHolm á Twitter.

Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá brot úr eldri þáttum
Slapp
banner
banner
banner