Marco Materazzi, fyrrum leikmaður Inter, myndi gjarnan vilja sameinast með Jose Mourinho á nýjan leik en saman unnu þeir Meistaradeildina með Inter árið 2010.
Materazzi, sem lagði skóna á hilluna árið 2011, er mikill aðdáandi Mourinho eftir að hafa spilað undir hans stjórn í tvö ár.
Materazzi, sem lagði skóna á hilluna árið 2011, er mikill aðdáandi Mourinho eftir að hafa spilað undir hans stjórn í tvö ár.
,,Það kom sumum á óvart þegar við unnum Meistaradeildina, en ekki mér. Okkur tókst það eftir einstakt tímabil og þetta var nánast eðlilegt fyrir okkur eftir að hafa unnið Serie A og bikarkeppnina. Við höfðum Mourinho eftir allt saman," sagði Materazzi.
Mourinho hefur verið harðlega gagnrýndur á Spáni en hann mun ekki stýra Real Madrid á næsta tímabili og gæti hann tekið við Chelsea á ný.
,,Þeir sem tala illa um Mourinho gera það fyrir öfundar sakir. Mér líkaði það hvernig hann stýrði liðinu þar sem hann lét okkur vinna mikið með bolta því hann veit að þessi íþrótt er fótbolti," bætti Materazzi við.
,,Hann vill alltaf ná árangri, og reynir líka að vera heiðarlegur maður. Heiðarleiki er eitt af grundvallaratriðunum í lífinu, svo afhverju ætti það ekki að skipta máli í íþróttum?"
Brátt gætu þeir sameinast á ný en Materazzi hefur verið orðaður sem aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Chelsea.
,,Ég myndi gjarnan vilja það, það yrði draumur. Það væri hægt að kalla það markmið. Ég myndi vinna með þeim allra besta, svo hvað gæti orðið betra?" sagði hann að lokum.



