Heimild: Sky
Leon Osman hefur skrifað undir nýjan samning við Everton sem gildir til ársins 2015.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið alla sína tíð hjá Everton og ekki er ólíklegt að hann klári ferilinn á Goodison Park.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið alla sína tíð hjá Everton og ekki er ólíklegt að hann klári ferilinn á Goodison Park.
Osman átti fínt tímabil með Everton sem skilaði honum meðal annars sæti í enska landsliðinu í fyrsta skipti.
,,Ég er ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning og um leið tryggt mér annað ár með félaginu," sagði Osman.
,,Ég hef verið hér síðan ég hætti í skóla, ég er leikmaður og stuðningsmaður. Ég elska að koma í vinnuna og ég er ánægður með að það muni halda áfram."



