Heimild: BBC
Gíbraltar hefur fengið inngöngu í UEFA og getur þar með sent lið til keppni í undankeppni EM 2016.
Tæplega 30 þúsund manns búa í Gíbraltar en landið er undir landstjórn Breta þrátt fyrir að hafa landamæri að Spáni.
Tæplega 30 þúsund manns búa í Gíbraltar en landið er undir landstjórn Breta þrátt fyrir að hafa landamæri að Spáni.
Gíbraltar reyndi að komast inn í UEFA árið 2007 en þá var aðild knattspyrnusambandsins þar í landi ekki samþykkt.
Gíbraltar er 54. aðildarlandið innan UEFA og jafnframt það fámennasta.
San Marinó var áður fámennasta landið en þar búa um það bil 32 þúsund manns.



