Heimild: mbl.is
Enski framherjin Lateef Elford-Alliyu sem kom til ÍBV fyrr í þessum mánuði er farinn heim. Frá þessu er greint á mbl.is.
Elford-Alliyu var ekki valinn í leikmannahóp ÍBV í neinum af þeim leikjum sem voru meðan hann dvaldi hér á landinu.
Elford-Alliyu var ekki valinn í leikmannahóp ÍBV í neinum af þeim leikjum sem voru meðan hann dvaldi hér á landinu.
Hann kom í láni frá C-deildarliðinu Crawley Town og þótti ekki standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.
ÍBV situr í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar eftir fjórar umferðir.




