Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 25. maí 2013 08:30
Magnús Már Einarsson
Bjarni Jó spáir í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Borussia Dortmund og FC Bayern mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley klukkan 18:45 í kvöld.

Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, og Bjarni Jóhannsson, þjálfari KA, hafa spáð í Meistaradeildina fyrir Fótbolta.net á þessu tímabili. Hér er spá Bjarna Jó fyrir sjálfan úrslitaleikinn.

Borussia Dortmund 0 - 3 FC Bayern
Bayern hefur haft tögl og haldir á Dortmund í vetur. Ég tel að fjarvera Mario Götze veiki Dortmund mikið og ég held að kóngurinn í Krít vinni þetta.

Ég tel að reynslan af úrslitaleikjum í þessari deild komi Bayern til góða. Þeir eru harmi slegnir eftir úrslitin á síðasta ári og ég held að það sé gríðarlegt hungur hjá þeim. Ég hef bara meiri trú á Bayern í þessu dæmi.
Slapp
banner
banner