Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 24. maí 2013 19:57
Brynjar Ingi Erluson
Walter Mazzarri tekur við Internazionale (Staðfest)
Internazionale á Ítalíu hefur ráðið Walter Mazzarri sem næsta þjálfara liðsins, en Andrea Stramaccioni hefur verið látinn taka poka sinn.

Mazzarri lét af störfum hjá Napoli á dögunum, en hann hafði náð mögnuðum árangri með liðið þar sem liðið hafnaði í öðru sæti og vann þá ítalska bikarinn á síðustu leiktíð.

Hann var búinn að ákveða að láta af störum eftir þetta tímabil og söðla um, en það tók hann ekki langan tíma að finna sér nýtt félag.

Hann hefur verið ráðinn þjálfari Internazionale, en eftir afar slakt tímabil þá tekur Andrea Stramaccioni pokann sinn. Liðið endaði í níunda sæti ítölsku deildarinnar, en það er versti árangur liðsins frá árinu 1994.

Það er því nóg framundan hjá Mazzarri að snúa gengi liðsins við, en það má vel búast við miklum breytingum innan hópsins í sumar.
Slapp
banner