Víkingur Reykjavík sýndi frábæra takta í kvöld þegar liðið vann magnaðan 5-2 útisigur gegn Fjölni í 1. deildinni. Víkingar spiluðu heimamenn sundur og saman í leiknum.
Aron Elís Þrándarson skoraði þrennu og Hjörtur Hjartarson tvö en sá síðarnefndi var tekinn tali eftir leik.
Aron Elís Þrándarson skoraði þrennu og Hjörtur Hjartarson tvö en sá síðarnefndi var tekinn tali eftir leik.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 5 Víkingur R.
„Ég var hundfúll með að vera á bekknum í fyrstu tveimur umferðunum. Þetta var vel þegið og tímabært að mínu mati," sagði Hjörtur.
„Ég átti persónulega von á miklu erfiðari leik. Þessi sigur var síst of stór, við áttum þennan leik frá upphafi til enda. Þrotlaus vinna þjálfarana hefur skilað sínu. Menn vilja spila fótbolta og það hefur gengið ágætlega."
Igor Taskovic, miðjumaður Víkings, átti frábæran leik.
„Hann er sannkallaður happafengur. Mér fannst hann hreint út sagt frábær í dag og hann hjálpar mikið á miðjunni. Svo eru menn eins og Aron árinu eldri og orðinn betri. Sigurður Egill Lárusson er kominn á láni frá Val og var frábær í dag."
Víkingur tapaði fyrir Selfossi í síðustu umferð.
„Óli (Ólafur Þórðarson) dauðsá eftir því að hafa mig á bekknum gegn Selfossi og ákvað að gera ekki þau mistök aftur," sagði Hjörtur kíminn.
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

























