Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 22:06
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: KV og Afturelding skildu jöfn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV 1 - 1 Afturelding
0-1 Wentzel Steinarr R Kamban ('52 )
1-1 Einar Bjarni Ómarsson ('71, víti )

KV og Afturelding gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í 2. deild karla á KV-Park í kvöld, réttast sagt gervigrasinu í Vesturbæ.

Það var markalaust í hálfleik, en heimamenn voru sterkari aðiinn. Það var hinsvegar breyting á í síðari hálfleik, en þá kom Wentzel Steinarr R Kamban gestunum yfir með marki á 52. mínútu.

Einar Bjarni Ómarsson jafnaði metin á 71. mínútu úr vítaspyrnu og þar við sat. Lokatölur í Vesturbæ, 1-1. KV í fyrsta sæti með sjö stig og Afturelding einnig með sjö stig, en markatala KV betri.
Slapp
banner
banner