Heimild: 433.is
Jónas Þór Næs bakvörður Vals verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla. Þetta staðfesti Magnús Gylfason við 433.is.
Jónas er líklega tábrotinn en þessi færeyski landsliðsmaður hefur leikið vel fyrir Valsmenn.
Valur mætir Keflavík á mánudaginn en liðið er í þriðja sæti og er taplaust þegar fjórum umferðum er lokið.




