Brasilíski táningurinn Neymar, sem leikur hjá Santos í heimalandinu, mun í dag ákveða sig hvort hann komi til með að velja milli Barcelona Real Madrid, en þetta alhæfa spænskir og brasilískir fjölmiðlar.
Neymar, sem er 21 árs gamall framherji, er talinn af mörgum einn besti knattspyrnumaður heims nú þegar, en hann hefur gert magnaða hluti með Santos.
Mikið hefur verið rætt og ritað um hann, en talið var að hann myndi yfirgefa Santos eftir HM í Brasilíu sem fer fram á næsta ári. Það stefnir þó allt í það að hann fari einu ári fyrir áætlun, en honum bárust tvö tilboð í gær.
Það fékkst strax staðfest að annað tilboðið væri frá spænsku risunum í Barcelona, en síðar í gær fékkst staðfest að Real Madrid ætti hitt tilboðið og mun því brasilíski snillingurinn fara yfir málin í dag áður en hann ákveður sig.
Það hafa flest allir beðið eftir komu hans til Evrópu og svo virðist sem það sé að gerast, en fróðlegt verður að sjá hvort liðið hann kemur til með að velja. Það er hinsvegar ljóst að Barcelona hefur smá forskot á Madrídinga sem stendur.
Talið er þó að tilboð Real Madrid hljómi 7 milljónum evra hærra en tilboð Börsunga og spurning hvort að peningar koma til með að spila hlutverk í akvörðun hans.


