Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 25. maí 2013 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Fernandes: Sagan hefði verið önnur með mig á Loftus Road
Tony Fernandes, eigandi QPR, tekur ábyrgð á falli félagsins úr ensku úrvalsdeildinni þar sem liðið vann aðeins fjóra leiki og endaði á botni deildarinnar.

Fernandes heldur því fram að félagið sé í góðri stöðu fjárhagslega og þurfi ekki að selja leikmenn.

,,Við gerðum mikið af mistökum og mér varð alvarlega á," sagði Fernandes.

,,Með QPR erum við komnir aftur á byrjunarreit og við ætlum að einbeita okkur að mínum meginreglum.

,,Með fullri virðingu þori ég að segja að hefði ég verið daglega á Loftus Road þá hefði sagan verið önnur.

,,Við erum ekki undir neinskonar fjárhagslegri pressu til að losa um leikmenn. Ef þú lítur á liðið þá eru leikmennirnir góðir, þeir hafa bara ekki náð saman.

,,Maður lærir fullt við að falla, miklu meira en maður lærir þegar allt gengur vel. Við höfum allt sem við þurfum en ég ætla ekki að spá því að við förum beint upp aftur.

,,Ég er að vinna hörðum höndum að því að tryggja að rétta fólkið sé innan félagsins. Þó það þýði að félagið verði í Championship deildinni í nokkur tímabil."

Slapp
banner
banner
banner