Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 25. maí 2013 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Baldini: Mistök að ráða Zeman
Roma mætir Lazio í úrslitaleik ítalska bikarsins á morgun og segir framkvæmdastjóri félagsins, Franco Baldini, að það hafi verið mistök að ráða Zdenek Zeman til starfa.

Zeman kom Roma í undanúrslitin en var rekinn í febrúar svo Aurelio Andreazzoli gæti tekið við þjálfarastarfinu.

,,Þetta tímabil hefur ekki skilað okkur því sem við vonuðumst eftir í ljósi hæfileika liðsins," sagði Baldini við sjónvarpsfréttir TG1.

,,Ef við vinnum ítalska bikarinn getur tímabilið talist jákvætt, annars ekki. Ég er ekki sérlega ósáttur með úrslitin heldur er ég ósáttur með minn þátt í öllu.

,,Ég gerði í það minnsta fjögur eða fimm mistök sem ég má ekki nefna því þá þyrfti ég að tala illa um vissar manneskjur.

,,Ég get sagt að ráðningin á Zeman voru mistök. Við vildum gefa stuðningsmönnunum eitthvað til að horfa á og njóta, en gátum ekki skilað réttum úrslitum."

Slapp
banner
banner
banner