Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 25. maí 2013 15:34
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Molde náði sér á strik gegn Kristjáni og félögum
Molde 4 - 0 Hønefoss
1-0 Daniel Chima Chukwu ('12)
2-0 Magnus Eikrem ('51)
3-0 Zlatko Tripic ('55)
4-0 Daniel Chima Chukwu ('60)

Noregsmeistarar í Molde byrjuðu tímabilið hræðilega og voru með sex stig eftir tíu leiki en eru nú að ná sér aftur eftir mikilvægt jafntefli gegn toppbaráttuliði Rosenborg og sigur í dag gegn Hønefoss.

Molde, sem er stýrt af Ole Gunnar Solskjær, er komið úr botnsætinu eftir sannfærandi sigur í dag og getur unnið sig upp þéttan miðdeildarpakka með sigrum í næstu umferðum.

Í byrjunarliði Hønefoss var varnarjaxlinn Kristján Örn Sigurðsson en Arnór Sveinn Aðalsteinsson byrjaði á bekknum og kom inná á 29. mínútu.

Daniel Chima Chukwu kom Molde yfir með skallamarki á tólftu mínútu
og þrátt fyrir gífurlegan sóknarþunga tókst heimamönnum ekki að bæta við fyrir leikhlé.

Allar flóðgáttir opnuðust á fyrsta korteri síðari hálfleiksins þar sem Magnus Eikrem,
Zlatko Tripic og Chukwu skoruðu þrjú mörk á níu mínútum og tryggðu Molde sigurinn.

Hønefoss er með þrettán stig eftir tólf leiki, Molde er í fallsæti með tíu stig.
Slapp
banner
banner
banner