,,Þetta var mjög fínn sigur og það var sérstaklega fínt að fylgja eftir síðasta leik," sagði Magnús Björgvinsson framherji Grindavíkur eftir 6-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni í dag.
Magnús fór á kostum í leiknum en hann skoraði tvívegis og fiskaði tvo leikmenn BÍ/Bolungarvíkur af velli. Magnús var duglegur að valda usla og hefði auðveldlega getað skorað fleiri mörk í leiknum.
,,Ég komst nokkrum sinnum í gegn og hefði kannski getað skorað fleiri en það var gott að vinna 6-1."
Grindvíkingar mæta næst KR í Borgunarbikarnum á fimmtuagskvöldið.
,,Okkur hefur gengið ágætlega gegn KR hingað til og það verður gaman að koma í Frostaskjólið og taka á þeim. Það er ekkert annað en sigur þar," sagði Magnús brattur að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























