Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
banner
   lau 25. maí 2013 16:43
Magnús Már Einarsson
Jörundur Áki: Skitum í buxurnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við skitum í buxurnar í dag og áttum alls ekki góðan dag," sagði Jörundur Áki Sveinsson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur eftir 6-1 tap liðsins gegn Grindavík í fyrstu deildinni í dag.

Magnús Björgvinsson lék BÍ/Bolungarvík grátt með hraða sínum í dag. Vestfirðingar voru hátt með varnarlínuna en Jörundur vill ekki meina að það hafi verið mistök.

,,Nei, nei, ekki ef við hefðum náð að setja almennilega pressu á boltann. Það var það sem við lögðum upp með. Við vitum að þeir eru hættulegir ef þeir fá tímann á boltann."

Sigurgeir Sveinn Gíslason og markvörðurinn Alejandro Munoz fengu báðir að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á Magnúsi þegar hann var að sleppa í gegn.

,,Mér fannst fyrra spjaldið vera réttur dómur en seinna spjaldið var örlítið meira vafamál. Dómarinn verður bara að svara fyrir sig."

Andri Rúnar Bjarnason, framherji BÍ/Bolungarvíkur, fór í markið þegar að Alejandro fékk rauða spjaldið.

,,Hann óskaði eftir því að fara í markið. Ég var nýbúinn að gera þriðju skiptinguna og var í smá vandræðum en hann tók þetta á sig."

BÍ/Bolungarvík er með sex stig eftir þrjár umferðir og þrátt fyrir tap í dag þá horfir Jörundur Áki björtum augum á framhaldið.

,,Við lærum af þessu og vonandi komum við sterkir til baka. Við eigum leik við Reyni Sandgerði í bikarnum í vikunni og síðan leik gegn Selfossi heima á mánudaginn. Við þurfum að nýta vikuna vel og fara yfir það sem fór úrskeiðis í þessum leik."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner