Fimmta umferðin í Draumaliðsdeild Domino's hefst í kvöld en þá eru fjórir leikir á dagskrá í Pepsi-deildinni.
Ennþá er hægt að skrá ný lið til keppni áður en 5. umferðin hefst en markaðurinn lokar klukkan 17:00 í dag.
Leikurinn er mjög svipaður og Fantasy leikurinn í ensku úrvalsdeildinni sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarin ár.
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Hægt er að skrá lið til leiks og gera breytingar á liðinu sínu til klukkan 17:00 í dag.
Stigagjöfin að þessu sinni verður samtengd við textalýsingakerfi Fótbolta.net og uppfærslan því mun sneggri en í fyrra
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!



