Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 25. maí 2013 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard: Ég mun þjást meira en nokkur annar
Steven Gerrard ræddi við vefsíðu Liverpool og talaði þar opinskátt um samband sitt við Jamie Carragher þar sem hann lýsti aðdáun sinni á leikmanninum og talaði um hversu mikið hann mun sakna félaga síns.

Eftir sautján ára veru á Anfield hefur Carragher ákveðið að leggja skóna á hilluna. Gerrard hefur verið fyrirliði Liverpool í áratug með Carragher sér við hlið og segist alltaf hafa litið á hann sem fyrirliða.

,,Hann (Carragher) er frábær leiðtogi og það þarf mikið til að vera virkilega frábær leiðtogi," sagði Gerrard við opinbera vefsíðu Liverpool.

,,Leiðtogi verður að tala mikið, vera skipulagður, vita hvað þarf að gera í sérstökum aðstæðum og svo þarf að vera fyrirmynd og setja fordæmi í einu og öllu.

,,Ég hef aldrei litið á Jamie sem varafyrirliða eða leikmann númer 2. Í mínum augum var hann fyrirliði. Við unnum mikið saman og leystum fyrirliðastarfið saman eins vel og við mögulega gátum.

,,Mér finnst þetta ótrúlegt, hann hefur spilað 737 leiki. Hvert orð sem hægt er að tengja við topp knattspyrnumann hefur einhvern tímann verið sagt um Jamie.

,,Hann er með eitthvað sem ekki margir knattspyrnumenn hafa, hann er reiðubúinn að reyna á eigin líkamleg takmörk til að vinna fótboltaleik.

,,Frá 2004 í svona þrjú eða fjögur ár var Carragher einn besti varnarmaður Evrópu, án nokkurs vafa.

,,Þú getur nefnt alla þessa bestu, hvort sem það er Terry, Ferdinand, Nesta eða Cannavaro þá hefur Carragher verið í sama gæðaflokki.

,,Þetta hafa verið erfiðir dagar frá því að hann lagði skóna á hilluna. Ég mun þjást vegna þessa meira en nokkur annar."

Slapp
banner