Völsungur 0 - 3 Leiknir Reykjavík
0-1 Brynjar Hlöðversson ('5)
0-2 Hilmar Árni Halldórsson ('31, víti)
0-3 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('62)
0-1 Brynjar Hlöðversson ('5)
0-2 Hilmar Árni Halldórsson ('31, víti)
0-3 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('62)
Leiknir Reykjavík er komið í fimm stig eftir þrjá leiki í fyrstu deildinni en liðið lagði Völsung í dag á Húsavík.
Brynjar Hlöðversson kom Leikni yfir snemma í fyrri hálfleik á Húsavíkurvelli og bætti Hilmar Árni Halldórsson öðru marki við úr vítaspyrnu og voru gestirnir tveimur mörkum yfir í hálfleik.
Ólafur Hrannar Kristjánsson gulltryggði sigur Leiknis á 62. mínútu en hann var kolrangstæður þegar hann skoraði mark sitt en ekkert var dæmt.
Völsungur er með eitt stig í næstneðsta sæti deildarinnar, eina stig liðsins kom gegn Tindastól.
Frekari umfjöllun birtist innan skamms.




