Jürgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund, segir að það sé ekki hægt að sýna biturð gagnvart Jupp Heynckes og hans mönnum í Bayern Munchen fyrir að vinna úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Klopp óskar félaginu og þjálfaranum til hamingju og bætir svo við að allt hafi heppnast fyrir Bayern í lokin og þeir því unnið leikinn.
Klopp óskar félaginu og þjálfaranum til hamingju og bætir svo við að allt hafi heppnast fyrir Bayern í lokin og þeir því unnið leikinn.
,,Ég vil óska Bayern og Jupp til hamingju með titilinn, það er ekki hægt að vera bitur út í hann fyrir sigurinn," sagði Klopp eftir leikinn.
,,Við vorum í leiknum alveg þar til í blálokin þegar allt heppnaðist fyrir Bayern og þeir unnu leikinn."



