Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 22:07
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: 101greatgoals 
Neymar búinn að skrifa undir hjá Barcelona
Spænski fréttamiðillinn Marca greinir frá því að Neymar sé búinn að skrifa undir samning við Barcelona.

Það er tekið fram að samtals eiga kaupin á Neymar að hafa kostað Börsunga 50 milljónir evra, eða um 42 milljónir punda.

Talið er að Neymar hafi skrifað undir fimm ára samning þar sem hann fær 7 milljónir evra í eigin vasa fyrir hvert tímabil.

Real Madrid á þá að hafa boðið Neymar 11 milljónir evra á tímabil en Neymar hafi valið ríkjandi deildarmeistarana framyfir þá hvítklæddu.

El Mundo Deportivo segir að þetta verði kynnt á næstu dögum en Barcelona vill halda þessu leyndu að minnsta kosti þar til eftir leik liðsins gegn Espanyol í deildinni.

Sky Sports greinir einnig frá þessu og þetta lítur út fyrir að vera sönn saga.
Slapp
banner