Heimild: Reuters
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur staðfest að hann sé að ganga til liðs við Barcelona á Spáni.
Neymar sem spilar með Santos í heimalandi sínu, Brasilíu, sagði nú rétt í þessu að hann muni skrifa undir samning við spænska stórliðið á mánudaginn.
Hann valdi liðið fram yfir erkiféndur þeirra í Real Madrid sem reyndu einnig að hreppa hann.
Þar með lýkur þriggja ára vangaveltum um hvað verður um þennan 21 árs gamla framherja sem hefur haft næga þolinmæði og spilað í brasilísku deildinni til þessa.





