Nú stendur yfir fyrsta æfing Fram undir stjórn Ríkharðs Daðasonar sem var ráðinn sem þjálfari fyrr í dag. Fótbolti.net hitti Ríkharð áður en hann fundaði með leikmannahópnum og hélt út á völlinn.
„Aðdragandinn var skarpur hraður og atburðarásin er nokkuð villt þegar maður lendir í svona. En þegar símtalið kemur og manni býðst svona tækifæri þá hugsar maður sig ekki lengi um. Ég tala nú ekki um þegar uppeldisklúbburinn býður manni svona tækifæri," sagði Ríkharður.
„Það kveikti áhuga minn á þjálfun þegar ég kom hingað og aðstoðaði Þorvald fyrir tveimur árum. Ég fékk mikla gleði út úr því og ég þekki til stórs hluta hópsins. Maður veit hvað býr í honum. Það eru mjög öflugir leikmenn og góður hópur."
Rikki og Auðun herbergisfélagar
Hvernig fótbolta vill Ríkharður Daðason spila?
„Fæst orð bera minnsta ábyrgð en að sjálfsögðu koma inn einhverjar áherslur. Við erum með ungt og efnilegt fram á við og við viljum að þeir komist í aðstöðu til að láta ljós sitt skína. Fyrsta tilraun verður í leik eftir viku."
Auðun Helgason verður aðstoðarmaður Ríkharðs en hann segir að það nafn hafi komið strax upp í hugann hjá sér.
„Það var að einhverju leyti forsenda fyrir því líka. Ég og Auðun þekkjumst mjög vel, spiluðum saman lengi úti. Vorum herbergisfélagar í landsliðinu í mörg ár og spiluðum á sitthvorum enda vallarins. Auðun var með Loga (Ólafssyni) í tvö ár og gott að geta treyst á hann að halda skipulagi og öðru á æfingum. Sérstaklega til að byrja með þar sem maður játar það bara að þar er ekki reynsla."
Sameiginleg markmið
„Við erum að fara að hitta leikmannahópinn og erum væntanlega að fara að setja okkur sameiginlegt markmið. Hvort við gerum þau opinber eða ekki kemur í ljós. Auðvitað hefur maður sín markmið fyrirfram en á eftir að bera þau undir hópinn, hvort hann sé ekki sammála þeim markmiðum."
Fyrsti leikur Fram undir stjórn Ríkharðs Daðasonar verður gegn Keflavík eftir viku en viðtalið við hann má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















