Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 09:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Bjarni Guðjóns: Ætti að gera þáttaseríu um Atla og Gary
Atli Sigurjónsson.
Atli Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin.
Gary Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net síðasta laugardag og talaði meðal annars um tvo af liðsfélögum sínum, Atla Sigurjónsson og Gary Martin.

Eftir að hafa verið í aukahlutverki í fyrra er Atli kominn í stærra hlutverk hjá KR núna og fengið mikið lof fyrir spilamennsku sína.

„Það hafa margir reynt að fara í KR en ekki náð að fóta sig. Það er meiri pressa, KR-ingar ætla alltaf að verða Íslandsmeistarar. Með fullri virðingu fyrir Þór er ekki sami bragur í félaginu. Atli notaði tímabilið í fyrra mjög vel og lærði alveg helling. Nú er hann eins og heima hjá sér," segir Bjarni um Atla.

„Við vissum áður en Atli kom í KR að hann væri með fullt af hæfileikum. Hann var erfiðasti maðurinn í þessu Þórsliði þegar við vorum að mæta þeim. Hann reyndist okkur erfiður. Hann hefur sýnt hvað hann getur í sumar og hefur bætt það við leik sinn hvernig hann verst með liðinu og hjálpar til varnarlega þegar við erum ekki með boltann. Hann er orðinn stór hluti af liðinu."

Atli og Gary Martin eru miklir vinir og lumar Bjarni á góðri hugmynd fyrir Hannes Þór Halldórsson markvörð sem einnig starfar sem leikstjóri.

„Þeir æfa mikið saman og eru hreinlega orðnir eins og bræður. Ég skil ekki í leikstjóranum í klefanum að vera ekki búinn að gera þáttaseríu um þá félaga. Hvern einasta dag kemur einhver saga um það hvernig þeir eru að taka á lífinu. Það er með hreinum ólíkindum hvernig þeir gera það."

Vinnur gott verk fyrir liðið
Gary Martin hefur ekki skorað eins mikið og margir bjuggust við en hefur þó verið að leika vel og skila mikilvægri vinnu inn í liðið.

„Gary vinnur ótrúlega mikla vinnu og gaman að spila með honum. Hann er maðurinn sem byrjar að verjast fyrir okkur og þá verður eftirleikurinn fyrir aðra í liðinu auðveldari. Við erum búnir að skora mikið í sumar og meðan það er svoleiðis höfum við engar áhyggjur af því að hann sé ekki að skora mikið. Gary á pottþétt eftir að setja inn nokkur mörk og detta í gang," segir Bjarni.

„Það sem skemmir mest fyrir honum er hvað hann er ofboðslega pirraður á því að vera ekki að skora. Hann talar mikið um það og þetta hvílir þungt á honum. En allir út í KR segja honum að hann þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu. Hann er að vinna gott verk fyrir liðið og það hjálpar öðrum að skora hvað er tekið hart á Gary."

Sjá einnig:
Upptaka af viðtalinu við Bjarna
Slapp
banner
banner
banner