Royston Drenthe, fyrrum leikmaður Real Madrid og Everton, er við það að ganga frá samningi við Reading.
Reading leikur í Championship-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð.
Þriggja ára samningur er sagður liggja á borðinu fyrir Drenthe sem hefur undanfarið leikið með Alania Vladikavkaz í Rússlandi.
Hann er hinsvegar laus allra mála frá rússneska liðinu og staðfesti umboðsmaður hans það í dag að Drenthe væri við það að skrifa undir hjá Reading.
Drenthe, sem er 26 ára gamall, var á sínum yngri árum talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu. Hann hefur hinsvegar aldrei náð þeim hæðum sem vonast var eftir.




