Heimild: Yahoo
Olympique Lyonnais, betur þekkt sem Lyon, hefur staðfest kaupin á Gael Danic frá franska félaginu Valenciennes.
Danic kemur til félagsins fyrir 800 þúsund evrur, en kaupverðið gæti hækkað um 200 þúsund og orðið því ein milljón.
Danic kemur til félagsins fyrir 800 þúsund evrur, en kaupverðið gæti hækkað um 200 þúsund og orðið því ein milljón.
Danic er 31 árs gamall kantmaður og átti 11 stoðsendingar á nýliðnu tímabili með Valenciennes í frönsku efstu deildinni, en félagið endaði í 11. sæti deildarinnar.
,,Olympique Lyonnais staðfestir komu Gael Danic til félagsins og mun hann skrifa undir tveggja ára samning í vikunni," stendur á vefsíðu félagsins.
Lyon endaði í þriðja sæti frönsku deildarinnar, 16 stigum eftir meisturum Paris Saint-Germain.

