Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 18. júní 2013 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Yahoo 
Ignacio Martinez tekur við Valladolid
Juan Ignacio Martinez tekur við Real Valladolid og er nýr þjálfari félagsins og kemur í stað Miroslav Djukic.

Martinez er búinn að skrifa undir tveggja ára samning en hann starfaði síðast sem þjálfari Levante þar sem samningur hans var ekki endurnýjaður eftir að hafa náð 11. sæti deildarinnar.

Þjálfarastaðan var laus hjá Valladolid vegna þess að Djukic sagði af sér til að taka við gamla félagi sínu Valencia.

Joaquin Caparros er búinn að taka við Levante, en Caparros hefur áður verið við stjórnvölinn hjá Sevilla, Deportivo La Coruna og Athletic Bilbao.
Slapp
banner
banner