Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 08:15
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sports Illustrated 
Bale sækir um einkarétt á fagni
Gareth Bale hefur verið í stuði upp á síðkastið og mikið hefur verið fylgst með honum. Bale ætlar að nýta sér frægðina og er búinn að sækja um einkarétt á fagninu sem hann gerir eftir að hafa skorað mark.

Það er klassískt að Bale geri merki með höndunum sem á að vera hjarta og er það tileinkað kærustu hans til margra ára.

Bale er búinn að sækja um einkarétt á fagninu vegna þess að þetta sé í raun 11 í hjarta. Bale er númer 11 hjá Tottenham og gerir hann hjartamerkið alltaf kringum ellefuna svo þetta sé ellefa í hjarta.

Bale var valinn besti leikmaður ársins í enskri knattspyrnu og hefur verið orðaður við lið á borð við Real Madrid og Manchester United.

Fyrir þá forvitnu þá heitir kærasta hans Emma og eignuðust þau barn saman í fyrra.
Slapp
banner
banner