Heimild: BBC
Hér að neðan má sjá helsta slúðrið úr enska boltanum í dag.
Liverpool hefur sagt Luis Suarez að hann verði að leggja fram formlega beiðni um sölu ef hann vill fara. (Daily Mail)
Henrikh Mkhitaryan er á leið í læknisskoðun hjá Liverpool en félagið er að kaupa hann frá Shakhtar Donetsk á 23 milljónir punda. (Daily Mirror)
Liverpool mun fjármagna kaupin með því að selja Andy Carroll til West Ham. (The Times)
Carroll mun fara í læknisskoðun hjá West Ham í dag en hann hefur samþykkt sex ára samning sem mun færa honum 100 þúsund pund í vikulaun. (Daily Telegraph)
Arsenal er í bílstjórasætinu í baráttunni um Gonzalo Higuain framherja Real Madrid þar sem Juventus hefur ákveðið að einbeita sér frekar að því að krækja í Carlos Tevez. (London Evening Standard)
Arsenal hefur einnig áhuga á Asier Illarramendi miðjumanni Real Sociedad. (Daily Mail)
Laurent Koscielny mun hafna tilboðum frá Barcelona og FC Bayern til að vera áfram í herbúðum Arsenal. (The Sun)
Manchester City mun kaupa Isco frá Malaga á 30 milljónir punda. (Daily Telegraph)
Chelsea þarf að borga 38 milljónir punda til að fá miðjumanninn Nemanja Matic frá Benfica. Hinn tvítugi Matic fór frá Chelsea til Benfica sem hluti af kaupverðinu þegar David Luiz gekk í raðir enska félagsins árið 2011. (Daily Star)
Tottenham vill fá Paulinho miðjumann Corinthians, Leandro Damiao framherja Internacional og David Villa framherja Barcelona. (Daily Mirror)
Sunderland mun fylla skarð Simon Mignolet með því að kaupa Joroen Zoet frá PSV Eindhoven á eina milljón punda. (Daily Star)
Tottenham ætlar að sannfæra Andre Villas-Boas um að hafna PSG og vera áfram hjá félaginu. (The Guardian)
Jores Okore, nýr leikmaður Aston Villa, segist hafa sofnað í læknisskoðun hjá félaginu. (Birmingham Mail)


