Liverpool hefur lagt fram tilboð í Luis Alberto framherja Sevilla.
Ramon Verdejo yfirmaður íþróttamála hjá Sevilla staðfesti þetta í dag en spænska félagið hefur ekki ennþá svarað tilboðinu.
Ramon Verdejo yfirmaður íþróttamála hjá Sevilla staðfesti þetta í dag en spænska félagið hefur ekki ennþá svarað tilboðinu.
Alberto er tvítugur en hann var í láni hjá B-liði Barcelona á síðasta tímabili.
Alberto er uppalinn hjá Sevilla en hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Spánar.
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er að vinna í að styrkja leikmannahóp Liverpool en auk Alberto er hann að reyna að fá Henrikh Mkhitaryan frá Shakhtar Donetsk og markvörðinn Simon Mignolet frá Sunderland.


