Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
banner
   þri 18. júní 2013 20:36
Hafliði Breiðfjörð
Maggi Gylfa: Treysti Hauki Páli betur en Nesta
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
,,Eyjaliðið er hörkulið og ef þú mætir þeim ekki í baráttunni þá verðurðu bara undir. Við vorum undir framan af í baráttunni en sköpuðum okkur nokkur góð upphlaup þegar við unnum boltann. Heilt yfir vorum við ekki nógu ákveðnir framan af en svo rifum við okkur upp og mér fannst við spila seinni hálfleikinn vel," sagði Magnús Gylfason þjálfari Vals eftir 1-1 jafntefli við ÍBV í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  1 ÍBV

,,Kannski er þetta sanngjarnt jafntefli en aftur á móti vorum við mun nær því að vinna síðasta hálftímann. Við létum boltann ganga, fórum upp í hornin og vorum með fyrigjafir og sköpuðum okkur nokkur hálffæri og vorum nálægt því að skora sigurmarkið. Það gekk ekki í dag en kemur bara næst."

Stefán Ragnar Guðlaugsson tognaði í kálfa og varð að fara af velli og á meðan Magnús undirbjó skiptingu komst ÍBV yfir í leiknum.

,,Já það var sárgrætilegt að geta ekki haldið aftur af þeim í nokkrar mínútur meðan við vorum að gera skiptinguna klára. Þetta kom óvænt upp og ég var aðeins að meta hvað ég ætti að gera en það var hræðilegt að fá á sig mark á þessum tímapunkti."

Stefán Ragnar er miðvörður og þegar hann meiddist bjuggust flestir við að Matarr Jobe, Nesta, kæmi inná en Magnús ákvað að setja miðjumanninn Andra Fannar Stefánsson inn og setja Hauk Pál Sigurðsson niður í miðvörðinn.

,,Mér fannst ekki nógu mikið flot á boltanum fram á við og ég treysti Hauki Páli betur í það. Ég var bara sáttur við það sem atvikaðist eftir það. við rifum okkur upp af rassgatinu í seinni hálfleik og spiluðum fínan fótbolta."

Nánar er rætt við Magnús í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner
banner
banner