Zakaria Elías Anbari, þjálfari Afríku í 4. deildinni, ræddi við Fótbolta.net eftir 3-0 tap gegn Árborg. Afríkuliðið er samkeppnishæfara en oft áður í neðstu deild og er ekki að tapa leikjum eins stórt og það gerði þó það sé aðeins með eitt stig.
„Við vorum alveg búnir í lokin. Við vorum að keppa við unga menn sem eru með kraft til að hlaupa í 90 mínútur. Okkar menn eru þreyttir, allir að vinna og að koma beint úr vinnu," sagði Zakaria Elías eftir leikinn.
„Ég er að reyna að laga liðið og við höfum spilað betur. Í seinni umferðinni vöknum við vonandi og náum í fleiri stig. Þetta verkefni hefur verið þannig að menn koma og fara og við erum eiginlega aldrei með sama lið."
Afríka er með mjög fjölþjóðlegt lið og segir Zakaria að það hafi sína ókosti fyrir sig sem þjálfara. Afríka hefur oft verið þekkt fyrir að tapa leikjum sínum stórt.
„Þessir innflytjendur eru að læra að venjast íslenskum fótbolta. Íslenskur fótbolti er öðruvísi en til dæmis frá Suður-Ameríku. Erfiðasta verkefnið er að safna þessum mönnum saman en vonandi erum við betri fyrir augum Íslendinga núna."
Það að halda úti þessu liði snýst ekki bara um fótboltann.
„Þetta snýst um að halda þessum hópi saman í íþróttum svo menn fari ekki og lendi í einhverri vitleysu. Okkur vantar samt meiri stuðning frá fyrirtækjum og einstaklingum.," sagði Zakaria en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























