ÍA hefur hafið viðræður við þjálfara til að taka við starfi Þórðar Þórðarsonar sem ákvað í fyrradag að hætta störfum.
ÍA mætir Breiðabliki í Borgunarbikarnum annað kvöld en Dean Martin og Jón Þór Hauksson munu stýra liðinu þar ef nýr þjálfari verður ekki ráðinn fyrir þann tíma.
ÍA mætir Breiðabliki í Borgunarbikarnum annað kvöld en Dean Martin og Jón Þór Hauksson munu stýra liðinu þar ef nýr þjálfari verður ekki ráðinn fyrir þann tíma.
,,Við erum að þreifa fyrir okkur með þjálfaramálin. Við erum ekki búnir að ganga frá neinu en við erum að vinna á fullu í þessum málum. Ég myndi samt ekki veðja á að það verði kominn nýr þjálfari fyrir leikinn á morgun," sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins ÍA við Fótbolta.net í dag.
,,Það eru margir um hituna. Það eru nokkrir goðir þjálfarar á lausu og það eru nokkrir sem koma til greina. Hugur okkar beinist í eina átt og það er vonandi að það skýrist sem fyrst."
Þorvaldur Örlygsson hefur verið sterklega orðaður við ÍA en samkvæmt heimildum Fótbotla.net fundaði hann með félaginu í gær. Þórður vildi þó ekki tjá sig um það hvort að Skagamenn hafi rætt við hann eða ekki.





