Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 19. júní 2013 14:19
Magnús Már Einarsson
Kristján Guð: Get ekki sagt nei ef Keflavík biður um aðstoð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Keflavík hringdi í mig í gærkvöldi, strax eftir stjórnarfund, þar sem þeir óskuðu eftir því að ræða við mig um starfið hjá þeim. Þeir óskuðu eftir því að ég kæmi inn og hjálpaði þeim og það var auðsótt mál," sagði Kristján Guðmundsson við Fótbolta.net í dag eftir að tilkynnt var að hann muni taka við þjálfun Keflavíkur af Zoran Ljubicic.

,,Ég get ekki sagt nei ef Keflavík biður mig um aðstoð. Þeir eru stór hluti af mínum þjálfaraferli og það er ekki hægt að segja annað en já þegar þeir hringja."

Samningaviðræður Kristjáns og Keflavíkur stóðu fram á nótt og menn voru ekki vel vakandi undir það síðasta.

,,Nei, ég get ekki sagt það," sagði Kristján hlægjandi. ,,Þetta hafðist og þetta er í fyrsta skipti sem ég kem inn í þjálfarastarf í miðju móti og þetta er mjög sérstök tilfinning."

Semur út tímabilið:
Kristján samdi við Keflvíkinga út tímabilið. ,,Báðir aðilar voru alveg sammála um það. Síðan verða málin skoðuð út frá því, við sjáum hvernig stemningin verður, hvernig gengur og hver framtíðarsýnin verður hjá Keflavík."

Kristján þjálfaði Keflavík frá 2005-2009 en hann hefur fylgst ágætlega með liðinu í sumar.

,,Ég hef fylgst með öllum liðunum og séð eitthvað af leikjum þeirra sem og annarra. Nú er bara að fara að kynnast þeim betur á æfingasvæðinu. Ég hef unnið með rúmlega helmingnum af leikmönnunum og þekki hina. Núna fer ég að vinna með þeim og sjá hvort það sé hægt að kveikja einhverja neista einhversstaðar."

Keflvíkingar eru einungis með fjögur stig eftir sjö umferðir en telur Kristján að það búi meira í liðinu?

,,Ég vil ekki fullyrða eitt né neitt. Ég þarf að koma inn í umhverfið og sjá hvað er að gerast. Við skulum segja að við finnum leiðir til þess að gera betur en þeir sem hafa verið með liðið undanfarin ár hafa gert mjög góða hluti."

Útvarpsþátturinn olli hugarangri:
Kristján hefur verið sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolta.net í Pepsi-deildinni en hann mun nú láta af þeim störfum.

,,Þetta olli mér hugarangri í nótt, ég verð að viðurkenna það. Hádegin í laugardögum hafa verið fastur punktur undanfarið og mikil veisla. Ég verð að lifa það af og vonandi .net líka," sagði Kristján léttur í bragði að lokum.
Slapp
banner
banner