Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 15:39
Magnús Már Einarsson
Margir hafa sótt um hjá ÍA - Þorvaldur líklegastur
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Margir erlendir þjálfarar hafa sýnt áhuga á að taka við liði ÍA en Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri félagsins staðfesti í samtali við 433.is í dag að tíu umsóknir hafi borist að utan.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Jesper Tollefsen einn þeirra sem hafa sótt um en hann þjálfaði Leikni R. árið 2007 og Víking R. ári síðar.

Jesper vildi ekki staðfesta þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en hann sagði þó að íslenskur umboðsmaður hafi ferilsskrá hans.

Jesper þjálfaði síðast FC Fyn í Danmörku en félagið varð gjaldþrota í febrúar síðastliðnum og hann hefur verið án félags síðan þá. Hann sagðist í samtali við Fótbolta.net í dag vera opinn fyrir því að þjálfa aftur á Íslandi.

Þorvaldur Örlygsson, fyrrum þjálfari Fram, er líklegastur til að taka við ÍA en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Fótbolti.net ekki náð í hann í dag.
Slapp
banner