Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA, segir að samningaviðræður við Þorvaldur Örlygsson hafi gengið vel fyrir sig en hann hefur verið ráðinn þjálfari skagamanna.
,,Það voru þrjú nöfn sem komu efst á listann hjá okkur og við höfðum samband við þau nöfn. Við hittum Þorvald í gærkvöldi og það gekk mjög vel," sagði Þórður við Fótbolta.net í dag.
;,Okkar hugmyndir um framtíðar og skammtíma uppbyggingu fóru klárlega saman. Þar af leiðandi gekk þetta mjög smurt fyrir sig þegar kom að samningaviðræðunum sjálfum, þær kláruðust mjög fljótt og örugglega."
Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari KR, var einn af þjálfurunum þremur á lista ÍA en Þórður vill ekki gefa upp hver sá þriðji var.
,,Pétur var einn af þeim sem var á lista hjá okkur. Hann kom sjálfur fram og gaf út að hann myndi ekki koma að þessu. Við heyrðum í þremur og það er mjög eðlilegt í svona ferli, að vera búinn að heyra hljóðið í mönnum. Hvort að þú býður þeim samning eða ekki er allt annað mál. Við vorum mjög vissir í okkar sök eftir að hafa hitt Þorvald. Það hvernig karakter hann er og hvernig hann sér fótboltann á mjög vel við okkur hérna á skaganum."



