Heimamenn í Brasilíu mæta Mexíkó í fyrri leik kvöldsins í Álfukeppninni, en Ítalir mæta Japönum í síðari leik kvöldsins.
Byrjunarlið leiks Brasilíu gegn Mexíkó hafa verið staðfest og má sjá þau hér fyrir neðan.
Bæði lið tefla fram sterkum byrjunarliðum þar sem Neymar, Oscar, Hulk og Fred byrja allir inná í fremstu línum heimamanna.

Brasilía vann fyrsta leikinn gegn Japan með þremur mörkum gegn engu á meðan Ítalir lögðu Mexíkóa 2-1.
Sex leikmenn í liði Brasilíu töpuðu úrslitaleik Ólympíuleikanna í Lundúnum gegn Mexíkó, en þrír gullverðlaunahafar eru í byrjunarliði Mexíkó.
Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á íþróttastöð RÚV.
Brasilía (4-2-3-1): Cesar - Alves, Silva, Luiz, Marcelo - Gustavo, Paulinho - Neymar, Oscar, Hulk - Fred
Mexíkó: Corona - Rodriguez, Salcido, Torrado, Dos Santos, Hernandez, Moreno, Guardado, Torres, Mier, Flores