Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 22:45
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild karla: Sigrar hjá Ými og Mídas
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Mídas lagði Vatnaliljurnar og Ýmir hafði betur gegn Ísbirni í leikjum kvöldsins í C riðli 4. deild karla.

Ýmir er nú í fjórða sæti með sjö stig eftir fimm leiki á meðan Mídas er með fimm stig, Ísbjörninn þrjú og Vatnaliljur þrjú.

4. deild karla - C riðill:
Mídas vann sinn fyrsta sigur í deildinni í kvöld með öruggum sigri gegn Vatnaliljunum. Garðar Geir Hauksson átti flottan leik fyrir Mídas og var fyrra mark hans sérlega glæsilegt með hjólhestarspyrnu. Þá stálu Ýmis menn stigunum gegn Ísbirninum þar sem Eyjólfur Örn Eyjólfsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

Vatnaliljur 0 - 4 Mídas
0-1 Garðar Geir Hauksson ('14)
0-2 Garðar Geir Hauksson ('20)
0-3 Björn Már Ólafsson ('79)
0-4 Finnur Þór Helgason ('97)
Rautt spjald: Leikmaður óþekktur, Vatnaliljur ('96)

Ísbjörninn 2 - 3 Ýmir
0-1 Bjarki Eldjárn Kristjánsson ('1)
1-1 Leikmaður óþekktur ('29)
1-2 Hallur Kristján Ásgeirsson ('41)
2-2 Óðinn Ómarsson ('52)
2-3 Eyjólfur Örn Eyjólfsson ('93)
Slapp
banner
banner