Ítalía 4 - 3 Japan
0-1 Keisuke Honda ('21, víti)
0-2 Shinji Kagawa ('33)
1-2 Daniele De Rossi ('41)
2-2 Atsuto Uchida ('50)
3-2 Mario Balotelli ('52, víti)
3-3 Shinji Okazaki ('69)
4-3 Sebastian Giovinco ('86)
0-1 Keisuke Honda ('21, víti)
0-2 Shinji Kagawa ('33)
1-2 Daniele De Rossi ('41)
2-2 Atsuto Uchida ('50)
3-2 Mario Balotelli ('52, víti)
3-3 Shinji Okazaki ('69)
4-3 Sebastian Giovinco ('86)
Ítalir og Japanir mættust í gríðarlega fjörugum leik í 2. umferð Álfukeppninnar.
Mattia De Sciglio, vinstri bakvörður Ítalíu, gerði hræðileg mistök í vörninni sem urðu til þess að Gianluigi Buffon braut á leikmanni Japan í eigin vítateig og fékk vítaspyrnu dæmda á sig og gult spjald.
Keisuke Honda skoraði örugglega úr vítaspyrnunni og tók Japan stjórn á leiknum í kjölfarið og spilaði glimrandi skemmtilegan og hraðan bolta.
Shinji Kagawa bætti öðru marki Japana við þar sem hann náði að athafna sig á þröngu svæði í vítateig Ítala og skora frábært mark þar sem hann tók boltann á lofti.
Daniele De Rossi minnkaði muninn rétt fyrir leikhlé nokkuð gegn gangi leiksins þegar hann stangaði hornspyrnu Andrea Pirlo í netið.
Atsuto Uchida skoraði þá sjálfsmark snemma í síðari hálfleik og skömmu síðar var Makoto Hasebe dæmdur brotlegur í eigin teig og skoraði Mario Balotelli úr vítaspyrnunni og kom Ítalíu þannig ótrúlega yfir.
Shinji Okazaki jafnaði með skalla eftir aukaspyrnu og voru Ítalir heppnir að lenda ekki undir þar sem þeir spiluðu restina af leiknum undir gríðarlegri pressu þar sem Japanir áttu tvö stangarskot og eitt sláarskot.
Það var þó Sebastian Giovinco sem skoraði lokamark leiksins eftir laglega skyndisókn Ítala sem unnu þennan leik þrátt fyrir að vera á afturfætinum nánast allan tímann.
Nú er því ljóst að Brasilía og Ítalía komast upp úr sínum riðli, en Brasilía verður í efsta sæti riðilsins á markatölu geri liðin jafntefli þegar þau mætast.



