Hér til hliðar má sjá skjáskot sem var tekið af útsendingu ESPN þar sem sjónvarpsstöðin sýndi viðureign Japana og Ítala í Álfubikarnum í beinni útsendingu.
Þegar varið var að fara yfir þrjá hættulegustu leikmenn Japan var tekið fram bakvörð Inter, Yuto Nagatomo, eftirsóttan miðjumann CSKA Moskvu, Keisuke Honda og Shinji Kagawa, sóknartengilið Englandsmeistara Manchester United.

Mistökin lágu í því að eftirnafn Shinji Kagawa var stafað sem Kawawa eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.
Kagawa var gríðarlega hættulegur í leiknum sem Japan tapaði óverðskuldað 4-3 gegn Ítölum, en Kagawa skoraði eitt marka Japans.